Í þáttunum Besti ódýri heilsurétturinn í umsjón Völu Matt er keppt um það hver gerir besta fljótlega og ódýra heilsuréttinn. Nokkrar af þekktustu konum landsins koma og búa til einn aðalrétt og einn eftirrétt.
Þær sem keppa eru þær Svala Björgvins, Edda Björgvins, Dóra Takefusa, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, Þórunn Högna, Guðlaug Ágústa Halldórsdóttir og Linda Pétursdóttir og dóttir hennar Isabella. Dúndur skemmtilegir og fróðlegir þættir þar sem við lærum að gera dásamlega hollusturétti fyrir lítinn pening.
Dómarar ásamt Völu Matt eru þeir Gunnar Helgason og Þorvaldur Skúlason. Í lokaþættinum fær sigurvegarinn svo vegleg verðlaun frá Ikea og Kosti.