Hljómsveitin Hatari flutti framlag Íslands, Hatrið mun sigra, í Eurovision söngvakeppninni nú kvöld. Hatari var sautjánda sveitin til að stíga á svið og stóð sig með glæsibrag. Gríðarleg stemmning var í salnum og hefur hópurinn fengið mikið hrós fyrir frammistöðuna, bæði hér á landi og erlendis. Spennan hefur sjaldan verið meiri. En það eru ekki aðeins sveit Hatara sem hefur slegið í gegn í Eurovision. Á erlendri sjónvarpsstöð sýndi táknmálstúlkur mikil tilþrif þegar hann túlkaði hið frábæra lag, Hatrið mun sigra. Andrés Jónsson almannatengill deildi myndskeiðinu og segir einfaldlega:
„Besta sviðsframkoma táknmálstúlks í keppninni.“