Bergþór valinn úr 6000 manna hópi

Bergþór Traustason, BS-nemi í verkfræðilegri eðlisfræði í Háskóla Íslands, hefur hlotið styrk frá hinum virta Cambridge-háskóla í Bretlandi til að hefja framhaldsnám í líftækni í haust. Bergþór er meðal tæplega 100 erlendra nemenda sem valdir voru úr hópi nærri 6.000 umsækjenda um styrk til náms við skólann. Á vefsíðu Háskóla Íslands er sagt frá þessu.

Styrkurinn er veittur innan svokallaðrar Gates Cambridge styrkjaáætlunar sem er sú virtasta sem erlendum nemendum við Cambridge stendur til boða. Áætlunin byggist á framlagi Bill and Melinda Gates Foundation til Cambridge-háskóla árið 2000 en markmið hennar er að styrkja til náms framúrskarandi erlenda námsmenn.

Bergþór lýkur BS-námi í verkfræðilegri eðlisfræði frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands í vor og hyggst afla sér meistaragráðu í líftækni við Cambridge-háskóla í framhaldinu. Hann segir áhuga sinn liggja í þróun nýrrar tækni til að rækta smáþörunga sem nota má til að vinna ýmsar vörur, eins og prótein og andoxunarvörur, á skilvirkan og umhverfisvænan hátt. Þess má geta að Bergþór vann að nýsköpunarverkefni tengdu þessu ásamt tveimur öðrum nemendum við Háskóla Íslands sumarið 2016 og voru þau tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands árið 2017 fyrir verkefnið. 

Samkeppni um styrki úr Gates Cambridge styrkjaáætluninni var afar hörð sem fyrr segir en alls sóttu tæplega 5.800 nemendur um styrk fyrir næsta skólaár. Við val á þeim 92 kandídötum sem fengu styrk að þessu sinni var m.a. horft til þekkingar nemenda, mögulegra leiðtogahæfileika og hugmynda nemendanna um hvernig nám þeirra myndi bæta líf annarra.

Bergþór er fyrsti Íslendingurinn til að hljóta styrk úr áætluninni frá árinu 2007.