Bergþór stígur til hliðar

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, hefur kosið að stíga til hliðar úr formannssæti umhverfis- og samgöngunefndar. Jón Gunnarsson tekur tímabundið við formennsku nefndarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vinstri grænum, Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum.

Umhverfis- og samgöngunefnd hefur verið í uppnámi síðan Bergþór Ólason sneri aftur til þingstarfa eftir tveggja mánaða launalaust leyfi í kjölfar Klaustursupptakanna. Meirihluta nefndarinnar taldi Bergþóri ekki stætt á að halda áfram.

Í tilkynningunni segir að umhverfis- og samgöngunefnd hafi af þessum sökum verið óstarfhæf um tíma og að það hafi truflað störf Alþingis. Ekki hafi verið fundað í nefndinni síðan 29. janúar.

Þingflokksformenn allra flokk hafi leitað allra leiða til að vinna úr stöðunni en án árangurs og Miðflokkurinn vildi ekki skipta um fulltrúa sinn í nefndinni. Bergþór hefur nú sjálfur kosið að stíga til hliðar og mun Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, taka við formennsku nefndarinnar tímabundið á meðan reynt er að finna lausn á málinu sem allir geti sætt sig við. Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður Vinstri grænna, mun taka við sem 1. varaformaður og Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, mun taka við sem 2. varaformaður.

Í tilkynningunni segir einni að hluti af ábyrgð þeirra sem hafa meirihluta á Alþingi er að tryggja að störf þingsins geti gengið eðlilega fyrir sig. Því telja þingmenn stjórnarflokkanna eðlilegt að þetta sé lausnin á meðan samkomulag næst ekki um annað fyrirkomulag.

Tilkynningin í heild:

Umhverfis- og samgöngunefnd hefur nú verið óstarfhæf um tíma og hefur það truflar störf Alþingis. Ekki hefur verið fundað í nefndinni síðan 29. janúar. Þingflokksformenn allra flokka hafa leitað leiða til að vinna úr stöðunni, án árangurs. Samkvæmt samkomulagi um nefndarformennsku minnihlutans kom þessi nefndarformennska í hlut Miðflokksins. Miðflokkurinn hefur ekki viljað skipta um sinn fulltrúa í nefndinni.

Bergþór Ólason hefur nú kosið að stíga til hliðar úr formannssætinu.

Jón Gunnarsson mun taka við formennsku í nefndinni tímabundið á meðan reynt er að finna lausn í málinu sem allir geta sætt sig við. Ari Trausti Guðmundsson tekur við sem 1. varaformaður og Líneik Anna Sævarsdóttir verður 2. varaformaður.

Hluti af ábyrgð þeirra sem hafa meirihluta á Alþingi er að tryggja að störf þingsins geti gengið eðlilega fyrir sig. Því telja þingmenn stjórnarflokkanna eðlilegt að þetta sé lausnin á meðan samkomulag næst ekki um annað fyrirkomulag.

Það er öllum ljóst að um tímabundna lausn sé að ræða til að koma störfum nefndarinnar í rétt horf. Ef og þegar aðstæður breytast eru stjórnarflokkarnir reiðubúnir að endurskoða þessa stöðu og telja raunar mikilvægt að slíkt endurmat eigi sér stað fyrir þinglok. Þar sem hér er um tímabundna ráðstöfun að ræða líta stjórnarflokkarnir ekki svo á að taka þurfi upp allt samkomulag stjórnar og stjórnarandstöðu um formennsku í fastanefndum Alþingis að svo stöddu.