„Áratugum saman barðist Sjálfstæðisflokkurinn fyrir einstaklingsfrelsi, frjálsum viðskiptum, afnámi forréttinda, markaðslausnum og vestrænni samvinnu. Að undanförnu hefur borið á því að Sjálfstæðisflokkurinn, eða sterk öfl innan hans, telji að flokkurinn eigi að fylgja þeim sem vilja snúa aftur til þeirra tíma þegar þjóðir einangruðu sig og telja að sundrung vinaþjóða feli í sér sérstök tækifæri fyrir Ísland.“
Þetta segir Benedikt Jóhannesson einn stofnanda Viðreisnar í pistli í Morgunblaðinu. Þar fjallar Benedikt um þá tilvistarkreppu sem Sjálfstæðisflokkurinn er í um þessar mundir en fjöldi manns hefur yfirgefið flokkinn að undanförnu. Telja margir fyrrverandi flokksmenn að forystan hafi ekki staðið sig þegar kemur að orkupakka 3. Benedikt segir:
„Stór hópur innan flokksins er andstæður markaðslausnum þar sem þær rekast á við sérhagsmuni. Þegar Viðreisn myndaði ríkisstjórn síðla hausts 2016 kynntum við okkur nýjustu ályktanir landsfundar Sjálfstæðisflokksins vel. Lítill munur var á áherslum Viðreisnar og Bjartrar framtíðar og því mikilvægt að finna samnefnara með Sjálfstæðisflokknum. Þegar samþykktir þessarar æðstu stofnunar sjálfstæðismanna fóru saman við hugmyndir okkar töldum við að auðvelt yrði að ná samkomulagi.“
Það var öðru nær. Benedikt heldur áfram:
„Ályktanir landsfundar fengu margar lítinn hljómgrunn – ekki hjá okkur heldur flokknum sem hafði samþykkt þær. Því kemur ekki á óvart að læknar í einkarekstri tala um „ríkisvæðingarstefnu dauðans“ meðan sjálfstæðismenn í ríkisstjórn fylgjast þöglir með,“ segir Benedikt og bætir við:
„Mantra nokkurra sjálfstæðismanna er að gera lítið úr konum sem fylgja sannfæringu sinni og eru bara rétt um þrítugt og þaðan af yngri. Sumir halda að konur í stjórnmálum séu bara gluggaskraut.“
Þá telur Benedikt að ýmsir flokkar séu í tilvistarkreppu eða öðrum vandræðum. Benedikt segir:
„Vandi Pírata er reyndar að erfitt er að átta sig á því hver stefna þeirra er í flestum málum. Á sama tíma hefur Samfylkingin kvatt miðjuna og færst til vinstri til þess að reyna að ná þeim atkvæðum af VG sem ekki vilja sjá samstarf við Sjálfstæðisflokkinn. Því er kominn tími fyrir marga til þess að hugsa málin upp á nýtt. Viðreisn var stofnuð til þess að frjálslyndir kjósendur ættu sinn málsvara, til þess að rödd neytenda heyrðist og ferskir vindar blésu um vettvang stjórnmálanna. Viðreisn er opin öllum sem unna frelsinu.“