Bára boðuð vegna klaustursmáls

Bára Halldórsdóttir, sem tók upp samtal sex þingmanna á Klaustri á dögunum, hefur verið boðuð til skýrslutöku. Þetta kemur fram í bréfi frá Héraðsdómi Reykjavíkur sem henni hefur verið sent. Bára steig fram í viðtali í Stundinni á dögunum, að undangenginni mikilli fjölmiðlaumfjöllun um óviðurkvæmileg ummæli þingmannanna í garð ýmissa kvenna, nokkurra karla og minnihlutahópa.

Bréfið sendir Reimar Pétursson fyrir hönd fjögurra einstaklinga, sennilega þingmanna Miðflokksins. Fram kemur í bréfinu að beiðnin um að mæta til vitnaleiðsla megi ekki skilja öðruvísi en svo að dómsmál kunni að verða höfðað gegn Báru.

Bára á að mæta til þinghalds í Héraðsdómi Reykjavíkur mánudaginn 17. desember klukkan 15:15 í dómsal 101.

Nánar á

https://www.frettabladid.is/frettir/bara-dregin-fyrir-dom-hefst-a-dansinn