Fyrrverandi starfsmaður Glitnis banka ætlaði að verjast ef skuldabréf sem útgefið var af Stím kæmi inn á borð sérstaks saksóknara. Hann hætti svo við þá vörn eftir yfirheyrslu árið 2011 og ákvað að leggja spilin á borðið, enda ekki hægt að verja kaupin á skuldabréfinu fyrir einn milljarð króna.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Þar segir frá réttarhöldum sem standa yfir í Stím-málinu. Magnús Pálmi Örnólfsson, fyrrverandi starfsmaður Glitnis, nýtur friðhelgi með því að vitna gegn yfirmönnum sem hann segir að hafi þrýst á sig við óeðlilega viðskiptahætti. Hann segist hafa haft frumkvæði að því að leggja spilin á borðið og segja sérstökum saksóknara satt. Hann segir að hann hefði sagt satt þótt hann myndi ekki njóta friðhelgi. Sú er raunin og er Magnús Pálmi lykilvitni og í raun ein helsta stoð ákæruvaldsins í málinu.