Vilhjálmur Birgisson verkalýðsleiðtogi á Akranesi og fyrsti varaforseti ASÍ, gagnrýnir Gylfa Magnússon dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands harðlega. Gylfi er einnig formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands. Gylfi var í viðtali í þættinum K100 í morgun. Hann sagði að það væri misskilningur að lækkun vaxta komi heimilum hér á landi til góða og bætti við að galið væri að takmarka lánstíma verðtryggðra lána. Gylfi sagði:
„Flest lán til heimilanna eru lán frá öðrum heimilum og þar fyrir utan eru heimilin að lána fyrirtækjum og hinu opinbera. Þannig að það er stórfurðulegt að horfa á vaxtalækkun sem tekjubót fyrir heimilin.“
Vilhjálmur er afar ósáttur við málflutning Gylfa og segir í pistli á Facebook.
„Hvað er eiginlega að hjá þessu ágæta fólki en Gylfi segir að það sé misskilningur að lækkun vaxta komi heimilunum til góða og galið að takmarka lánstíma verðtryggðra lána, Telur Gylfi misskilning fólginn í því að telja að vaxtalækkun færi heimilunum mikinn ávinning þar sem heimilin eru einnig eigendur vaxtaberandi eigna.“
Þá segir Vilhjálmur enn fremur: „Að hugsa sér að Gylfi Magnússon formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands og umsækjandi um að verða Seðlabankastjóri skuli halda því fram að okurvextir sem heimilin þurfa að þola séu byggðir á misskilningi og að vaxtalækkun komi heimilunum ekki til góða því heimilin séu \"eigendur\" vaxtaberandi eigna! Hvað er maðurinn að eiginlega að tala um að það sé bara eðlilegt að íslensk heimili séu að greiða 3 til 3,5% hærri raunvexti en neytendur á Norðurlöndunum.“
Baneitraður kokteill
Vilhjálmur segir að það liggi fyrir sérfræðiálit um að 40 ára verðtryggð jafngreiðslulán séu baneitraður kokteill sem verði að banna, Vilhjálmur segir:
„ ... enda gera þessi lán ekkert annað en að hækka fyrstu 25 árin af samningstímanum! Nei það vill Gylfi Magnússon alls ekki því nauðsynlegt er að halda áfram að bjóða uppá baneitraða kokteila sem byggjast uppá að sjúga allt fé frá varnarlausu lágtekjufólki.
Allt byggt á misskilningi því heimilin eigi svo mikið að \"vaxtaberandi eignum\", er hann kannski tala um að blóðmjólka þurfi húsnæðiskaupendur í hverjum mánuði til að verja lífeyriskerfið?“
Kúba norðursins
Vilhjálmur spyr hvort Gylfi geri sér ekki grein fyrir að af 30 milljóna króna húsnæðisláni þarf íslenskur almenningur að greiða allt að 100 þúsundum meira í vaxtakostnað miðað við neytendur á Norðurlöndunum í hverjum mánuði. Vilhjálmur segir:
„Eina sem vantar í þetta viðtal við Gylfa Magnússon er hann haldi því fram að við verðum Kúba norðursins ef tekið verður á okurvöxtum fjármálakerfisins og hagsmunir alþýðunnar og heimilanna verði teknir fram yfir hagsmuni fjármálaelítunnar!“
Vilhjálmur segir að lokum:
„Ég tel að hérna blasi við hvernig hluti af fræðasamfélaginu og embættismannakerfinu er tilbúið að berjast af alefli gegn kerfisbreytingum þar sem hagsmunir heimilanna verði teknir fram yfir hagsmuni fjármálakerfisins.
Mikilvægt að þetta ágæta fólk átti sig á því að tími kerfisbreytinga þar sem hagsmunir almennings verða hafðir að leiðarljósi er runninn upp, enda byggist lífskjarasamningurinn að stórum hluta á þeirri staðreynd!“