Baltasar Kormákur og Þjóðleikhúsið vinna nú að því að setja upp Villiöndina eftir Henrik Ibsen á næsta leikári. Baltasar leikstýrði síðast leikverki á sviði árið 2010, þegar hann setti upp Gerplu í Þjóðleikhúsinu. Vísir.is greinir frá.
Baltasar hefur á þeim níu árum sem liðin eru frá því hann leikstýrði síðast í leikhúsi verið önnum kafinn í kvikmyndagerð, þar sem hann hefur m.a. leikstýrt sjö kvikmyndum og alls fjórum þáttum af Ófærð, auk þess að framleiða fjölda kvikmynda og þáttaraða.
Vísir.is greinir frá því að meðal rómaðra leikstjórnarverkefna Baltasars í Þjóðleikhúsinu eru Þetta er allt að koma, Pétur Gautur, Ívanov, Leitt hún skyldi vera skækja, Hamlet, RENT og Draumur á Jónsmessunótt. Hann hlaut Grímuverðlaunin fyrir leikstjórn sína á Þetta er allt að koma og Pétri Gaut.
Einnig kemur fram að Villiöndin, sem var frumflutt árið 1885, sé af mörgum talið eitt allra besta leikrit raunsæis leikskáldsins Henriks Ibsens. Leikritið var síðast sett upp í Þjóðleikhúsinu árið 1996.