Bandaríski markaðurinn er ekki lengur í lægð. Hagvöxtur þar eykst og neytendur eru jákvæðir. Atvinnuleysi minnkar og kaupmáttur vex og laun hækka. Bandaríski markaðurinn er í mikilli nálægð við Ísland með góðar samgöngur og langa og farsæla viðskiptasögu. Orðspor Íslands er gott og Ísland stendur því vel hugum bandarískra neytenda.
Ferðamönnum frá Bandaríkjunum hefur fjölgað gríðarlega á síðustu árum og vöruútflutningur til Bandaríkjanna er einnig að aukast. Þetta og annað kemur fram í samantekt aðalræðismanns Íslands og viðskiptafulltrúa Íslands Hlyns Guðjónssonar. Hlynur hefur aðsetur í borgini New York. Í úttekt Hlyns kemur fram að umfang vöruútflutnings Íslands til Bandaríkjanna hafi ekki verið jafn hátt hlutfallslega í tólf ár.
Þrátt fyrir vöxtinn er útflutningur Íslands til Bandaríkjanna einungis um níu prósent af heildar útlfutningi frá Íslandi. Evrópska efnahagsssvæðið (EES) er enn sem fyrr langsamlega stærsta markaðssvæðið fyrir íslenskar vörur. Munar ekki hvað síst um ál framleitt hér á landi en það fer að mestu leiti til Evrópu. En viðskiptasamband Íslands og Bandaríkjann hefur sjaldan verið sterkara. Kjarninn segir frá þessu.
Nánar www.utanrikisraduneytid.is og www.kjarninn.is og www.iceland.is/us/nyc