Einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar, Sigurður Sigurjónsson var gestur Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut í gærkvöld og deildi þar með áhorfendur lífi sínu og list, svo karakterunum öllum og týpunum sem stokkið hafa fullskapaðar úr höfði hans um ævina.
Leikarinn átti merkilega æsku eins ogg vel kemur fram í þættinum, en hann missti föður sinn barnungur og kynntist vel því basli sem það er fyrir einstæða tveggja barna móður að hafa í sig og á í haftabúskap sjötta og sjöunda áratugar síðustu aldar.
Siggi ólst raunar ekki upp við það að nota orðið \"pabbi\" eins og hann lýsir eftirminnilega í þætttinum - og það var ekki fyrr en hann eignaðist sjákfur börn með Lísu eiginkonu sinni að hann fann það hljóma í höfði sínu - og raunar heldur einkennilega að því er honum fannst, enda óvanur því með öllu.
Feimin var allsráðandi í lífi hans í barnæsku - og raunar hefur hún aldrei yffirgefið hann með öllu, en það var skátastarfið í Hafnarfirði á bernskuárunum sem kveikti leiklistaráhugann - og raunar hefði Siggi fylgt hefðinni i sinni fjölskyldu og orðið iðnaðarmaður, sennilega húsamálari, ef skátastarfið hefði ekki komið til.
Mannamál eru endursýnd í dag og um helgina.