Átti ekki von á meira fylgi við davíð

Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, og Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri voru meðal gesta í kosningaþætti Þjóðbrautar á Hringbraut.

Aðspurður sagðist Styrmir ekki hafa átt von á að fylgi við Davíð Oddsson í forsetaslagnum yrði meira en þá mældist, nokkuð undir tuttugu prósentum.

Þórhildur rifjaði upp að í sigurliði Kristjáns Eldjárns hafi konur verið áberandi og þar hafi jafnvel orðið til vissa meðal kvenna um að þær gætu og jafnvel ættu að láta meira af sér kveða.