Átakanlegt bréf íslenskrar móður: „langar að þakka þér fyrir að hafa stolið fallega saklausa stráknum mínum“

Síðustu daga hefur verið fjallað um í flestum fjölmiðlum um dánartíðni ungmenna vegna lyfjatengdra andláta sem hefur verið mjög há síðustu mánuði. Í Mannlíf er að finna ítarlega umfjöllun þar sem fram kemur að árið 2018 voru 39 andlát vegna fíkniefna en meðaltal síðustu tíu ár er 27, sem sýnir hversu alvarlegt ástandið er. Þá skrifar Kolbeinn Marteinsson um þessi mál í Fréttablaðinu. Hann segir:

„Frá árinu 2016 hafa um 100 manns látist vegna ofneyslu lyfja. Ef 100 iðkendur golfs á Íslandi hefðu látist af slysförum á golfvellinum eða 100 hjólreiðamenn hefðu legið í valnum í umferðarslysum undanfarin fjögur ár væri hér búið að blása í þjóðarátak og setja ný lög og reglugerðir til að hamla gegn þessu.“

Hér má lesa umfjöllun Mannlífs og umfjöllun Fréttablaðsins er að finna hér. Hringbraut birtir bréf sem vakti mikla athygli á sínum tíma á Pressunni. Bréfið er skrifað af íslenskri móður og beinir hún orðum sínum til fíkniefnasalans sem seldi barninu hennar fíkniefni. Frásögnin er átakanleg en skilaboðin dýrmæt og mikilvæg. Bréfið hljóðar svo:

Kæri fíkniefnasali sem selur barninu mínu

Mig langar að þakka þér fyrir að hafa stolið fallega saklausa stráknum mínum. Og kenna honum að ekkert er mikilvægara en að fá hjá þér efni. Honum er alveg sama um systkini sín. Og hvað þá foreldra sína.

Heimilið mitt er ógeðslegt í hvert skipti sem ég kem heim úr vinnunni. Yngri börnin mín koma heim úr skólanum á hverjum degi og vita ekkert hvernig ástandið á bróður þeirra er. Þau geta ekki komið heim með vini, því að foreldrar vina þeirra vilja ekki að börnin sín séu í svona umhverfi.

Þau eru alltaf með kvíða yfir því hvað þegar mamma kemur heim. Verður hún leið, fer hún grátandi að sofa útaf því að hún getur ekki hjálpað honum. Getur ekki fengið hann til þess að sjá hvað hann er að gera með því að vera svona. Hver verður framtíð hans? Á hann einhvern tímann eftir að stoppa og hugsa að hann langi ekki að vera svona? Á hann eftir að fá vinnu? Vill einhver annar en þú ráða hann í vinnu? Hann er svo ungur, hann á að vera í skóla, fara á skólaböll með jafnöldrum sínum, spila tölvuleiki allt annað en að redda sér til þess að geta hitt þig.

Ég vona að þú eigir aldrei eftir að lenda í þessu með þitt barn. Jafnvel þótt ég hati þig meira en allt þá óska ég þér ekki að lenda í því sama og ég er að ganga í gegnum.

Ég þrái ekkert heitara en að fá hann aftur til baka og í burtu frá þér. Fá að sjá fallega innilega brosið hans og hlæja með honum. Tala við hann án þess að vera svo leið yfir því að hann er ekki að hlusta á mig.

Og fá að taka utan um hann og finna það að hann elskar mig jafn mikið og ég elska hann.