Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur fengið 23.447.944 krónur endurgreiddar vegna aksturskostnað frá árinu 2013. Þetta kemur fram á vef Alþingis en laun og kostnaðargreiðslur þingmanna voru birtar í gær.
Mest keyrði Ásmundur árið 2014 en þá fékk hann tæpar 5,4 milljónir endurgreiddar vegna aksturskostnaðar á eigin bifreið. Árið 2015 fór hann einnig yfir 5 milljóna króna markið en þá fékk hann rétt rúmlega 5 milljónir endurgreiddar. Árið 2016 fékk hann tæpar 4,9 milljónir fyrir aksturskostnað á eigin bifreið. Lægstu greiðslurnar vegna ferðakostnaðar á eigin bifreið fékk hann árið 2013 fyrir tímabilið 2013 til 2017 en þá fékk hann tæpar 3,2 milljónir endurgreiddar.
Á þessu ári hafa endurgreiðslur Ásmundar minnkað til muna en það sem af er ári eru þær rúmar 680 þúsund krónur fyrir ferðir á eigin bifreið og rúmar 820 þúsund fyrir ferðir með bílaleigubíl, eða samtals 1,5 milljónir
Nánar á