Áslaug skýtur fast á þorgerði

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari og þingmaður Sjálfstæðisflokksins skýtur föstum skotum á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formann Viðreisnar í pólitískri grein sinni í Morgunblaðinu í dag. Áslaug nefnir Þorgerði þó ekki á nafn, en nafn hennar blasir millir allra lína greinarinnar.

\"Það er til að mynda mjög auðvelt að tala fyrir svokölluðum kerfisbreytingum,\" skrifar Áslaug \"án þess þó að lyfta litlafingri í því að taka á kerfinu þegar þess þarf eða stuðla að umfangsmiklum breytingum. Það er líka mjög auðvelt að segja sjálfan sig tala fyrir „almannahagsmunum“ en ekki „sérhagsmunum“ og reyna þannig að stilla þeim sem kunna að vera ósammála þér upp við vegg. Enn auðveldara er að tala fyrir frjálslyndi án þess þó að vera sérstaklega frjálslyndur í verki.“

Það þarf enginn að vera í vafa við hvern hér er átt: \"Þeir sem tala fyrir hærri sköttum, auknum umsvifum hins opinbera, auknum eftirlitsiðnaði og auknu regluverki geta ekki skreytt sig með frjálslyndisfjöðrum. Jafnvel þótt þeir detti öðru hvoru inn á eitt og eitt mál sem kalla mætti frelsismál, þá fellur það í skuggann af stjórnlyndinu sem þeir boða á hverjum degi. Frasinn um almannahagsmuni gegn sérhagsmunum er ekki jafn innihaldsríkur og hann er langur. Eru það almannahagsmunir að hækka skatta á tilteknar atvinnugreinar ef ske kynni að þeim gengi vel? Eru það almennt almannahagsmunir að hækka skatta og halda að ríkið geti varið fjármagninu betur en þeir sem á hverjum degi vinna hörðum höndum að því að skapa verðmæti? Eru það almannahagsmunir að auka skriffinnsku, fjölga reglugerðum og auka afskipti ríkisins af daglegu lífi bæði almennings og atvinnulífisins?“

Áslaug skiptir pólitíkinni í tvennt: \"Með einföldum hætti mætti skipta stjórnmálaviðhorfum upp í tvennt; annars vegar þá sem vilja háa skatta og aukin umsvif hins opinbera og hins vegar þá sem vilja lækka skatta og minnka umsvif hins opinbera. Þetta er vissulega einföldun því stjórnmálin fjalla um margt annað, en engu að síður er tekist á um þessi grunnatriði með reglubundnum hætti. Þá kemur í ljós hverjir það eru sem eru frjálslyndir í raun og hverjir segjast bara vera frjálslyndir. Og þá kemur líka í ljós hverjir hafa talað í innantómum frösum án nokkurrar innistæðu.“

Vefritið eyjan.is bar orð Áslaugar undir Þorgerði Katrínu, formann Viðreisnar. Aðspurð hvort Sjálfstæðisflokkurinn væri í einskonar hefndarhug gegn Viðreisn vegna stuðnings við vantrauststillöguna gegn Sigríði Á. Andersen, sagði Þorgerður að það gæti vel verið: \"Það getur vel verið að það sé vantraustið, en við erum líka að segja hluti sem rugga bátnum. Ég ræddi það ítarlega í ræðu minni á landsfundi og við munum ekkert hætta að tala um það. Það er greinilegt að ekki öllum líkar það, en við munum halda ótrauð áfram að tala um þessi mál,“ sagði Þorgerður.

Eftir að blaðamaður Eyjunnar las upp hluta pistilsins fyrir Þorgerði sagði hún: \"Veistu, ég ber virðingu fyrir Áslaugu Örnu og hef alltaf gert. Það er landsfundur framundan hjá þeim og þá þurfa menn að brýna sig. En ég óska Áslaugu alls hins besta og Sjálfstæðisflokkurinn er heppinn að hafa manneskju eins og hana innan sinna raða. Við getum samt verið ósammála um hluti og við munum halda áfram að tala um þessi mál sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur líka vanrækt í gegnum tíðina. Og ég hef á tilfinningunni að það séu fleiri innan Sjálfstæðisflokksins sem eru okkur sammála heldur en ekki.“