Áslaug arna: „stefna sjálfstæðisflokksins að standa vörð um fullveldi landsins“

„Efasemdir um innleiðingu þriðja orkupakkans byggjast á þeim misskilningi að í honum felist afsal á yfirráðum yfir auðlindum, framsal á fullveldi, skuldbinding um lagningu sæstrengs og jafnvel brot á stjórnarskrá. Ekkert af þessu á hins vegar við rök styðjast. Allir þeir aðilar sem unnið hafa að málinu, bæði stjórnmálamenn og sérfræðingar, eru sammála um að eins og málið er nú lagt upp feli það ekki í sér brot á stjórnarskrá, framsal á fullveldi eða afsal á auðlindum. Þá liggur fyrir að enginn raforkusæstrengur verður lagður nema með samþykki Alþingis.“

Þetta segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins í pistli í Morgunblaðinu. Áslaug segir að að heyra megi tortryggni frá andstæðingum 3 orkupakkans og jafnvel andstöðu við EES-samninginn sem Áslaug segir að hafi verið eitt mikilvægasta skref sem Íslendingar hafi stigið í alþjóðasamstarfi. Sá samningur hafi fært Íslendingum frelsi og komið að miklu gagni hvað varðar útflutning og allir landsmenn hafi grætt á því. Þá sé samningurinn hluti af þeirri hagsæld sem Íslendingar búi við í dag. Áslaug segir:

„Í 25 ára sögu EES-samningsins hafa aðildarríki aldrei beitt rétti sínum til að neita að staðfesta ákvarðanir sínar í sameiginlegu EES-nefndinni. Ástæðan er einkum sú að þegar aðildarríkin taka ákvörðun í sameiginlegu nefndinni um atriði sem taka skal upp í samninginn er jafnan að baki langur undirbúningur þar sem þjóðþingin hafa beina aðkomu að málum. Einstaka mál eru þannig lengi í vinnslu með vilja og vitund þeirra ríkja sem að samningnum standa. Það á einnig við um svokallaða orkupakka.“

Þá heldur Áslaug fram að af öllum aðildarríkjum EES eigi Ísland mest undir að samningurinn haldi.  

„Það væri því ábyrgðarleysi gagnvart íslenskum hagsmunum að setja framkvæmd samningsins í uppnám af litlu sem engu tilefni,“ segir Áslaug og heldur áfram: „Það er hins vegar ástæða fyrir okkur til að sameinast um það markmið að vakta lagasetningar og reglugerðir mun betur. Á þetta hef ég lagt áherslu sem formaður utanríkismálanefndar Alþingis. Hér eiga stjórnvöld, atvinnulíf og fleiri aðilar mikilla hagsmuna að gæta.“

Þá segir Áslaug: „Alþingi ætti ekki og mun ekki hika við að nýta rétt sinn til að hafna innleiðingu og upptöku EES-reglna ef íslenskum hagsmunum er verulega ógnað. Ekkert í þriðja orkupakkanum, eins og upptaka hans og innleiðing liggur nú fyrir Alþingi, gefur hins vegar tilefni til að nota þann öryggisventil í fyrsta sinn.“ Áslaug segir að lokum. „Það er og verður stefna Sjálfstæðisflokksins að standa vörð um fullveldi landsins og yfirráð Íslendinga yfir þeim auðlindum sem hér er að finna. Það á ekki síður við í þessu máli.“

Við minnum á Facebook-síðu Hringbrautar. Þar er að finna áhugaverðar fréttir og þá er ýmislegt spennandi framundan fyrir vini Hringbrautar á Facebook. SMELLTU HÉR og vertu vinur okkar á Facebook.