Así: forsendur kjarasamninga brostnar

Forsendur kjarasamninga eru brostnar að mati forystumanna Alþýðusambands Íslands, en samkvæmt ákvæði í samningunum koma þeir til endurskoðunar fyrir lok þessa mánaðar.
 
Í tilkynningu frá ASÍ frá því nú síðdegis segir að það sé mat ASÍ, að óbreyttu, að forsendur um að launastefna kjarasamninganna hafi verið stefnumarkandi hafi ekki gengið eftir. Því er heimild til uppsagnar þeirra fyrir lok febrúar enn í gildi.
 

Vegna þessarar stöðu hefur miðstjórn ASÍ ákveðið að boða til formannafundar aðildarfélaga ASÍ á miðvikudaginn kemur, eða 28. febrúar, þar sem farið verður yfir málið og ákvörðun tekin um viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar.