Ásgeir Jónsson segir að tvennt skýri veikingu krónunnar að undanförnu. Nefnir hann afgang á vöru- og þjónustuviðskiptum sem hafi dregist saman að undanförnu. Hægst hafi á vexti ferðaþjónustu og það að einherju leyti grafið undan gengi krónunnar.
„Hins vegar eru blikur á lofti víða og farið að bera á svartsýni. Væntingar stjórnenda fyrirtækja til næstu sex mánaða – mælt af Gallup – hafa til dæmis fallið að undanförnu og eru nú lægri en eftir hrunið,“ segir Ásgeir sem bætir við að margir óttist að ferðaþjónustan sé brothætt. Þá hafi kröfugerðar verkalýðsfélaga vakið ugg.
„Þar er beðið um miklar launahækkanir – mun meiri hækkanir en atvinnulífið getur staðið undir án þess að verulegar verðhækkanir komi til. Sagan kennir okkur að í hvert sinn sem laun eru snarhækkuð um tugi prósenta fellur gengið og verðbólgan fer úr böndunum. Eldri kynslóðir í verkalýðshreyfingunni voru farnar að átta sig á þessu samhengi en nú virðist vera komin fram ný kynslóð verkalýðsleiðtoga sem virðist ekki gera sér grein fyrir þessu,“ segir Ásgeir.
Nánar á