Ár liðið frá andláti stefáns karls - „ekkert læknar slíkt að fullu, ekki einu sinni tíminn sem allt á að lækna“

„Í dag er liðið ár frá andláti Stefáns Karls. Sá dagur var okkur öllum erfiður en þó fylgdi honum líka einhver lausn því ekkert okkar vildi að Stefán myndi þjást frekar. Dauðinn er óútreiknanleg skepna.“

Á þessum orðum hefst hjartnæm færsla Steinunnar Ólínu Þorsteinsdóttur, ekkju hins ástsæla leikara og skemmtikrafts Stefáns Karls Stefánssonar, sem hún birti á Facebook-síðu sinni í dag. Eins og Steinunn greinir frá er tilefni skrifanna að í dag er ár liðið frá því að Stefán féll frá eftir illvíga baráttu við krabbamein.

„Það líður ekki sá dagur að ég hugsi ekki til elsku Stefáns og þannig er farið með marga í fjölskyldunni. Í minningunni lifir hann með okkur. Margs góðs er að minnast,“ segir Steinunn.

Hún segir börn þeirra standa furðu styrkum fótum. „[F]yrir það er ég afar þakklát þótt ég geti vitanlega aldrei tekið frá þeim þann sársauka sem því fylgir að missa pabba sinn. Ekkert læknar slíkt að fullu, ekki einu sinni tíminn sem allt á að lækna. Við erum öll breyttar manneskjur og lítum lífið öðrum augum en áður.“

Að elska og vera elskaður

Steinunn segir að í dag sé henni þakklæti efst í huga. „[Þ]akklæti til allra þeirra fjölmörgu sem hafa verið fjölskyldunni nálægir með einum eða öðrum hætti síðastliðið ár.“

„Án samvistar við annað fólk væri lífið harla lítils virði. Maður getur ekkert einn. Manni eru hinsvegar allir vegir færir ef manni auðnast í erfiðum aðstæðum að þiggja umhyggju og aðstoð annara. Það hefur verið stærsta persónulega lexían.“

„Ég endurtek það sem ég hef áður sagt: Að elska og vera elskaður er það eina sem skiptir máli. Allt annað er drasl,“ segir Steinunn að lokum.