Alvarlegt fjórhjólaslys við geysi - einn fluttur slasaður af vettvangi

Lögreglan á Suðurlandi eru nú að sinna fjórhjólaslysi sem átti sér stað við Geysi í Bláskógabyggð. Einn var fluttur slasaður af vettvangi með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Að sögn lögreglu valt fjórhjólið.   

Lögreglan á Suðurlandi segist ekki geta veitt frekari upplýsingar að svo stöddu. Búast má við miklum umferðartöfum á svæðinu þar til rannsókn á slysstað er lokið.