Alþjóðleg ráðstefna um #metoo hefst á morgun

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, setur alþjóðlega ráðstefnu um #metoo  í Hörpu á morgun og mun ráðstefnan standa til 19. september næstkomandi. Ráðstefnan hefst klukkan 14:30 með lykilerindum og umræðum norrænna ráðherra jafnréttismála.

Á morgun verður meðal annars sagt frá tillögum óbirtrar skýrslu UN WOMEN undir yfirskriftinni What will it take? Promoting Cultural Change to End Sexual Harassment. Í skýrslunni eru greindar þær breytingar sem taldar eru nauðsynlegar í kjölfar #metoo byltingarnar, bæði formlegar breytingar og samfélagslegar. Einnig verður fjallað um niðurstöður viðamikillar rannsóknar á umfangi kynferðislegrar áreitni, kynbundinnar áreitni eða ofbeldis auk eineltis á íslenskum vinnumarkaði sem unnin var að frumkvæði Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra. Þá mun Angela Davis, prófessor og rithöfundur, flytja lykilerindi um áhrif #metoo hreyfingarinnar.

Yfir 800 manns hafa skráð sig til þátttöku á ráðstefnunni og er hún því með stærri ráðstefnum um #metoo sem haldin hefur verið. Um áttatíu fyrirlesarar taka þátt í ráðstefnunni úr röðum fræðafólks, aktívista, stjórnmálamanna og sérfræðinga. Roxane Gay, Liz Kelly, Marai Larasi og Cynthia Enloe eru meðal þeirra heimsfrægu fyrirlesara sem taka til máls á ráðstefnunni.

Ráðstefnan er liður í formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni og er skipulögð í samvinnu við RIKK – rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands. Nú í haust verða tvö ár liðin frá því að #metoo-bylgjan hófst haustið 2017 þegar konur um allan heim greindu frá kynferðislegu ofbeldi og kynbundinni og kynferðislegri áreitni.