Alþjóðleg bókmenntaverðlaun kennd við laxness

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að veita tvær milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til að standa straum af verðlaunafé vegna nýrra alþjóðlegra bókmenntaverðlauna sem verða kennd við Halldór Laxness. Tillaga forsætisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra um fjárveitinguna var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun.

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá ráðuneytunum tveimur.

Þar segir að tilefnið sé ekki síst það að hundrað ár eru nú liðin frá því að Halldór Laxness gaf út sína fyrstu skáldsögu, Barn náttúrunnar. Verðlaunin verða veitt virtum erlendum rithöfundi fyrir endurnýjun sagnalistar og afhent á Bókmenntahátíð í Reykjavík, nú fyrst í apríl 2019 en síðan annað hvert ár eftir það, árin 2021, 2023, 2025 og 2027. 

Forsætisráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðherra, Íslandsstofa, Bókmenntahátíð í Reykjavík, Forlagið, sem er útgefandi verka Halldórs Laxness, og Gljúfrasteinn munu í sameiningu standa að hinum alþjóðlegu bókmenntaverðlaunum.

Þá verður valnefnd skipuð einum fulltrúa forsætisráðuneytisins, mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Íslandsstofu, einum fulltrúa Bókmenntahátíðar, Forlagsins og Gljúfrasteins og þeim höfundi sem síðast hlaut verðlaunin. Ný nefnd verður skipuð í kjölfar hverrar Bókmenntahátíðar og val hennar mun liggja fyrir sex mánuðum fyrir afhendingu.