Alltaf gott þegar danir koma með bækur

Margrét Þórhildur Danadrottning gaf íslensku þjóðinni heildarútgáfu á skrifum Kristjáns X. varðandi málefni Íslands á árunum 1912 til 1932. Í sinni upprunalegu mynd fylltu minnispunktarnir konungsins 444 handskrifaðar síður sem hafa hingað til ekki verið aðgengilegar almenningi.
 

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, tók við gjöfinni frá drottningunni. Hann sagði við það tækifæri að það væri alltaf gott þegar Danir koma með bækur til Íslands. Minnispunktar konungs eru ómetanlegar heimildir um samskipti Íslands og Danmerkur í aðdraganda og kjölfar þess að Ísland fékk fullveldi og um það hvernig konungurinn brást við kröfum Íslendinga

Nánar á

http://www.ruv.is/frett/alltaf-gott-thegar-danir-koma-med-baekur