Ilmkjarnaolíur og þráðlausar lausnir

Ilmkjarnaolíur og þráðlausar lausnir verða til umfjöllunar í þættinum Allt er nú til sem er á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl 18:45.

Hver elskar ekki góða lykt sem getur hjálpað við svo margt ? Við kíktum til Lindu í Heilsuhúsið á Laugavegi og fræddi hún okkur um mismunandi ilmkjarnaolíur.

Í þætti kvöldsins verður einnig farið í Johan Rönning, gamalt og gróið fyrirtæki sem hefur verið til í meira en 80 ár. Það sem við munum ræða við Helga um eru þráðlausar lausnir. Virkilega spennandi nýjung sem eru mjög nútímalegar.

Þættirnir Allt er nú til eru unnir af sölu- og markaðsdeild Hringbrautar, en þar gefst fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum að kynna vöru sína og þjónustu.

Allt er nú til er eins og fyrr segir á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl 18:45, en hann er í umsjá Díönu Írisar Guðmundsdóttur, [email protected]