Ágúst ólafur óskar eftir veikindaleyfi

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að óska eftir veikindaleyfi frá þingstörfum og hefur lokið mánuði af áfengismeðferð, sem stendur enn yfir. Í færslu á Facebook greinir hann frá þessu og biðst aftur afsökunar á óforsvaranlegri hegðun sinni í garð Báru Huldar Beck, blaðamanns Kjarnans.

Ágúst Ólafur tók sér launalaust leyfi frá þingstörfum fyrir tveimur mánuðum síðan eftir að hafa fengið áminningu frá trúnaðarnefnd Samfylkingarinnar vegna atviksins.

Hann segir áfengisvanda sinn enga afsökun fyrir hegðun sinni og að hann beri fulla ábyrgð á gjörðum sínum. „Hjálpin sem ég hef fengið innan SÁÁ hefur komið mér í skilning um þá afneitun sem ég hef verið í gagnvart sjúkdómi mínum. Áfengi var farið að hafa mjög neikvæð áhrif á líf mitt og það er sömuleiðis sárt að vita til þess að ég hef valdið öðrum vanlíðan. Ég hef komist að því að vandi minn er meiri en ég hafði áttað mig á,“ skrifar Ágúst Ólafur.

Hann segir það fátt sem hann langi meira en að vinna í þágu réttlátara samfélags en að hann þurfi að setja heilsu sína og meðferð í forgang. „Ég mun því óska eftir því að fara í veikindaleyfi frá störfum mínum á Alþingi á meðan ég vinn að því að ná bata. Tíminn mun leiða í ljós hvenær ég muni taka aftur sæti á þingi. Ég vona að fólk sýni þeirri ákvörðun skilning,“ skrifar Ágúst Ólafur að lokum.