Einn allra dáðasti rithöfundur þjóðarinnar, Þórarinn Eldjárn er gestur Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamál á Hringbraut í kvöld en þar munu þeir skáldbræður ræða líf og list Þórarins í þaula - og raunar svo einlæglega að eftir verður tekið.
Hugmyndavinna skáldsins verður í fyrirúmi viðtalsins til að byrja með, en Þórarinn er vanur að hafa skrifkompu á sér þar sem hann párar niður hugdetturnar jafn óðum og þær berast honum úr nálægum veruleika, en einhver skelfilegustu augnablik hans megi einmitt rekja til þess þegar algerri snilldarhugmynd lýstur niður í huga hans og hvorki skriffæri né pappír er nærri, en allar þær gleymdu og glötuðu ídeur sæki æ meira á hug manns eftir því sem frá líður og raunar róti fátt eða ekkert meira upp í huganum en töpuð hugsmíð.
Þórarinn er nýbúinn að senda frá sér sjöunda smásagnasafnið sitt, Þættir af séra Þórarinum og fleirum sem er feiknlega skemmtilegt aflestrar eins von og vísa er af skáldsins hálfu, en fáum ef nokkrum rithöfundum tekst betur upp í að hversdagsgera það fáránlega í mannlegum samskiptum svo eftir lifir sá seigasti hlátur sem sögur geta vakið.
Þeir ræða meðbyr lífsins og mótbyr, en Þórarinn og kona hans, Unnur Ólafsdóttir þekkja merkingu missis og saknaðar; tveir synir þeirra af fimm eru látnir eftir annars vegar langvarandi vanheilsu og hins vegar skammvinn veikindi, en Þórarinn lýsir þessari erfiðu reynslu fjölskyldunnar af yfirvegun og hispursleysi; líf manns færist á nýjan stað við áföll af þessu tagi og afstaðan sömuleiðis, en vel að merkja; áföll séu ekki það sama og óhamingja, lífsgleðin hverfi ekki þótt kynni manns við sorgina verði full til náin.
Það er og áhugavert að heyra Þórarinn rifja upp æskuárin á Þjóðminjasafninu, frá þeim tíma þegar hann óskaði þess heitt að búa í venjulegu húsi við hefðbundna götu eins og jafnaldrar hans, en þeir Sigmundur Ernir ræða líka forsetatíð föður hans og hvað það var sem öðru fremur einkenndi hana - og talinu er vitaskuld einnig beint að vinskap hans og tveggja annarra Matthildinga sem sett hafa svip sinn á íslenskt samfélag síðustu áratuga.
Mannmál eru frumsýnd öll fimmtudagskvöld klukkan 20:30.