„Maður er aldrei orðinn of seinn að byrja að spara. Ég mæli með því að fólk reyni að skipuleggja fjármálin sín þannig að það sé helst skuldlaust þegar það fer á eftirlaun. Ef maður hugar að þessum málum tímanlega og fjárfestir ekki um of þá gengur það alveg upp“, segir Gunnar Baldvinsson, viðskiptafræðingur og framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins.
Gunnar er gestur Lindu Blöndal í sjónvarpsþættinum 21 á Hringbraut í kvöld, þar sem hann ræðir nýja bók sína, Lífið á efstu hæð. Í bókinni fjallar hann um hve afdrifaríkar ákvarðanir við þurfum að taka til að búa í haginn fyrir efri árin sem fyrr en varir eru komin, enda viljum við öll njóta góðra eftirlauna og ekki þurfa að hafa fjárhagsáhyggjur.
Eftirlaunaþegum fjölgar
30 þúsund Íslendingar munu fara á eftirlaun á næstu tíu árum. Á næstu árum mun fólki á eftirlaunum fjölga meira en á vinnumarkaði. Eftir 25 ár verður fimmtungur þjóðarinnar á eftirlaunum.
Eftirlaun eru ekki bara greiðslur úr lífeyrissjóði. „Eftirlaun samanstanda af fjórum til fimm tekjuliðum. Skyldusparnaður er tvíþættur; annars vegar að við greiðum í lífeyrissjóð og hins vegar að almannatryggingar tryggja öllum lágmarks lífeyri. Síðan eru mjög margir með viðbótarlífeyrissparnað, sem er mjög góð leið til að bæta við lífeyrinn. Nokkrir eiga réttindi eða sparnað af því að hafa starfað í útlöndum. Síðasti liðurinn er svo aðrar eignir eða annar sparnaður sem hver og einn hefur lagt fyrir á starfsævinni“, útskýrir Gunnar.
Fimmta handbók Gunnars
Lífið á efstu hæð er fimmta bók Gunnars. Þær eiga það allar sameiginlegt að vera leiðarvísar eða handbækur þegar kemur að fjármálum og sparnaði. Lífinu á efstu hæð er skipt í tvennt; grunn þar sem er að finna samantekt á gagnlegum upplýsingum um eftirlaun, ávöxtun og atriði sem hafa áhrif á fjárhag eftirlifenda við fráfall og efri hæðir sem inniheldur ráðleggingar til þeirra sem eru að safna fyrir eftirlaunum (eiga langt eða stutt í eftirlaun) eða eru að byrja á eftirlaunum. Bókin endar síðan á stuttum kafla um þá sem eru byrjaðir á eftirlaunum (eru svo að segja fluttir á efstu hæð).
Nánar er rætt við Gunnar í 21 sem hefst kl. 21 á Hringbraut í kvöld.