Í greiningu Íslandsbanka er því spáð að áfram verði vöxtur í komu erlendra ferðamanna. Þeir verða helsta stoð útflutningsvaxtarins. Núverandi uppsveifla er að verða ein sú lengsta í seinni tíma hagsögu landsins.
Greining Íslandsbanka spáir því að íslenska ferðaþjónustan standi undir 45% af gjaldeyristekjum íslenska þjóðabúsins. Á móti skili sjávarútvegur og áliðnaður samanlagt 31% af gjaldeyristekjum íslenska þjóðabúsins.
Nánar www.islandsbanki.is www.vb.is