Á þriðja hundrað viðburðir eru skipulagðir í Reykjavíkurborg á Menningarnótt sem verður sett nú í hádeginu. Búist er fleiri en hundrað þúsund manns sæki miðborgina heim og segir borgarstjóri að með mikilli skipulagningu þoli innviðir borgarinnar alla þá aðsókn sem verður fram á kvöld.
Fyrir tveimur árum var gefið út að rúmlega 120 þúsund manns hafi sótt viðburði Menningarnætur í miðborginni en á síðasta ári treystu yfirvöld sér ekki til að gefa út nákvæman fjölda en sagði að aldrei hefði eins margir komið saman í miðborginni á einum degi.
Nánar á
http://www.visir.is/g/2018180818916/a-annad-hundrad-thusund-manns-i-midbaenum