84 prósent íbúða á höfuðborgarsvæðinu seldust undir ásettu verði

Samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs seldust 84 prósent íbúða á höfuðborgarsvæðinu undir ásettu verði í apríl. Í skýrslunni er einnig greint frá því að nær allir leigjendur telji að þeir verði áfram á leigumarkaði eftir hálft ár. Auk þess lækka óverðtryggðir vextir íbúðalána í kjölfar lækkunar Seðlabanka Íslands á stýrivöxtum.

Fram kemur að um 84 prósent allra íbúðaviðskipta á höfuðborgarsvæðinu í apríl voru undir ásettu verði og að um 10 prósent íbúða seldust á hærra verði en á þær var sett. Um er að ræða nokkra breyting frá því sem var fyrir ári síðan þegar annars vegar 69 prósent seldust undir ásettu verði og hins vegar 17 prósent seldust á hærra verði.

Mikil eftirspurn er eftir minni íbúðum og eru þær líklegri til þess að seljast yfir ásettu verði. Það sem af er ári hafa 24 prósent viðskipta með eins eða tveggja herbergja íbúðir á höfuðborgarsvæðinu verið yfir ásettu verði, samanborið við aðeins 7 prósent viðskipta með íbúðir sem eru fimm herbergja eða stærri. Á undanförnum áratug hafa minni íbúðir ríflega tvöfaldast í verði á undanförnum áratug á meðan verð stærri eigna hefur hækkað um rúm 70 prósent.

88 prósent leigjenda telja að þeir verði áfram á leigumarkaði

Samkvæmt nýrri könnun Íbúðalánasjóðs og rannsóknafyrirtækisins Zenter telja 88 prósent leigjenda líklegt að þeir verði áfram á leigumarkaði eftir hálft ár. Aðeins um 9 prósent telja að þeir verði komnir af leigumarkaði. 16 prósent þeirra sem búa enn í foreldrahúsum telja líklegt að þeir færi sig yfir á leigumarkað á næstu 6 mánuðum en í hópi húsnæðiseigenda er hlutfallið einungis 2 prósent.

Óverðtryggðir vextir hafa lækkað

Frá því að Seðlabankinn tilkynnti lækkun stýrivaxtavaxta um 0,5 prósentustig í lok síðasta mánaðar hafa flestir þeir sem bjóða upp á óverðtryggð fasteignalán lækkað vaxtakjör sín, allt frá 0,15 til 0,7 prósentustigum. Dæmi voru um að lækkanirnar hafi verið komnar fram einni til tveimur vikum fyrir tilkynningu Seðlabankans um vaxtalækkun þar sem margir markaðsaðilar höfðu spáð fyrir um lækkun.

Aldrei fleiri umsóknir um stofnframlög borist

Þann 5. mars síðastliðinn var opnað fyrir umsóknir vegna næstu úthlutunar stofnframlaga ríkisins til almennra leiguíbúða. Aldrei hafa borist fleiri umsóknir um stofnframlög en nú og er heildarfjárhæð stofnframlaga ríkisins sem sótt er um rúmir 6 milljarðar króna.

Sótt er um stofnframlög vegna 915 íbúða, þar af til byggingar á 619 íbúðum og kaupum á 296 íbúðum sem ætlaðar eru tekju- og eignaminni leigjendum, svo sem námsmönnum, öldruðum, fötluðum og skjólstæðingum félagsþjónustu sveitarfélaga.

Íbúðamarkaður á Vestfjörðum tekur við sér

Í skýrslunni er einnig greint frá því að viðskipti með íbúðir á Vestfjörðum hafi tekið vel við sér að undanförnu eftir að hafa verið í dálítilli lægð. Segir að húsnæðismarkaðurinn á Vestfjörðum sé nokkuð frábrugðinn því sem þekkist annars staðar á landinu, sem stafar meðal annars af því að meðalaldur er hærri, auk þess sem hlutfall einbýlishúsa er hátt.

Var árleg velta fasteigna hærri á Vestfjörðum en á sambærilegum svæðum og talsverð hækkun hefur einnig orðið á söluverði eigna á á svæðinu.

Skýrsluna má lesa í heild sinni hér.