Tæp 80 prósent félagsmanna styðja verkfall

Í nýrri könnun sem Gallup framkvæmdi meðal félagsmanna Eflingar stéttarfélags kemur í ljós mikill stuðningur við kröfugerð félagsins í kjarasamningum. Tæplega 80 prósent félagsmanna telja hana sanngjarna og sama hlutfall segist hlynnt því að fara í verkfall til að knýja á um launakröfur verkalýðsfélaganna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Eflingar.

Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar er stuðningur við kröfur, verkfallsaðgerðir og væntingar um launahækkanir í kjölfar kjarasamninga meiri meðal félaga af erlendum uppruna .

Auknar fjárhagsáhyggjur

Könnunin leiðir einnig í ljós mikla aukningu á fjárhagsáhyggjum meðal félagsmanna frá launakönnun sem framkvæmd var í ágúst síðastliðnum. Þær hafa aukist um 16 prósent á milli mælinga, úr 47 prósent sem hafa miklar eða mjög miklar áhyggjur í kjarakönnun í ágúst 2018 í 63 prósent í janúar 2019. Þetta eru mestu fjárhagsáhyggjur sem hafa mælst í könnunum Eflingar frá efnahagshruni.