60 milljónir til bergsins headspace

Ráðherrar fimm ráðuneyta hafa tekið sig saman og ákveðið að taka þátt í samstarfi um stofnun og rekstur Bergsins Headspace, þverfaglegs móttöku- og stuðningsúrræðis fyrir ungt fólk. Um er að ræða tilraunaverkefni til tveggja ára og munu ráðherrarnir verja 30 milljónum króna á ári til verkefnisins, þar á meðal í formi stöðugilda.

Á grundvelli tillagna frá stýrihópi stjórnarráðsins í málefnum barna tóku Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra, Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir dómsmálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra þessa ákvörðun.

Gert er ráð fyrir að einnig verði leitað eftir stuðningi meðal fyrirtækja og annarra aðila sem bera samfélagslega ábyrgð. Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að tilraunaverkefnið falli að áherslum stjórnvalda sem samhliða munu leggja aukna áherslu á forvarnir, fyrirbyggjandi aðgerðir og snemmtæka íhlutun í heildarendurskoðun í þjónustu við börn þvert á ráðuneyti.

Úrræðið hefur verið í burðarliðnum um nokkurt skeið og er stofnað af Sigurþóru Bergsdóttur og Dr. Sigrúnu Sigurðardóttir, lektor við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri með stuðningi fleiri aðila.

Bergið Headspace er þverfaglegt móttöku- og stuðningsúrræði fyrir ungt fólk undir 25 ára sem býður upp á einstaklings- og áfallamiðaða lágþröskuldaþjónustu. Fyrirmyndir Headspace má finna í Ástralíu og Danmörku þar sem svipuð úrræði hafa gefið góða raun. Markmiðið er að auka og gera skilvirkari þjónustu við börn og ungmenni og reyna að tryggja að þau fái aðstoð sem fyrst. Lögð er áhersla á að einfalda ferlið og skapa vettvang þar sem börn og ungmenni geta haft samband við aðila sem veita stuðning og ráðgjöf út frá þörfum hvers og eins og beinir málum þeirra í réttan farveg. Þá verður sérstaklega horft til tæknilausna og fjarþjónustu.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, telur mikilvægt að börn geti fengið stuðning og hjálp án þess að vera með skilgreindan vanda. „Til að hægt sé að hvetja börn og ungt fólk til að leita sér hjálpar þá verðum við að sjá til þess að það sé auðvelt og einfalt að gera það og að það sé hægt áður en vandinn verður alvarlegur. Bergið Headspace verður vonandi dýrmætur hlekkur í því að tryggja slíka hjálp og þá í nánu samstarfi við skóla, heilsugæslu og aðra aðila í nærumhverfi barna sem er lykilatriði.“

Á sama tíma og unnið er að uppbyggingu þessa úrræðis mun fara fram, í samræmi við tillögur stýrihóps í málefnum barna, rannsókn á líðan barna og ungmenna á Íslandi. Kannaðar verði mögulegar ástæður þess að þau upplifa vanlíðan og kvíða, þjónustuúrræði kortlögð sem og nýting þeirra og árangur. Markmiðið er að innan árs liggi fyrir heildarmynd af kerfinu og tillögur um umbætur.