36 styrkir að heildarupphæð 97,5 milljónir króna

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra voru viðstaddar úthlutun úr Barnamenningarsjóði Íslands fyrir árið 2019 við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu í dag á degi barnsins. Þetta kemur fram á vef Stjórnaráðsins. Þar segir enn fremur:

Samþykkt var að veita 36 styrki að heildarupphæð 97,5 milljónir kr. Fimm manna valnefnd fjallaði um umsóknirnar og rann umsóknarfrestur út 1. apríl sl. og bárust 108 umsóknir.

Verkefnin, sem valnefndin mælir með að hljóti styrki, spanna vítt svið lista og eru lýsandi fyrir víðfeðm áhugasvið barna og ungmenna sem og gróskumikið menningarstarf um landið allt.

Barnamenningarsjóður Íslands var stofnaður í tilefni aldarafmælis fullveldisins í samræmi við ályktun Alþingis á hátíðarfundi 18. júlí 2018 og er átaksverkefni til fimm ára. Hlutverk sjóðsins er að fjármagna og styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi. Í starfi sjóðsins er m.a. horft til áherslu menningarstefnu um samstarf stofnana, skóla, félagasamtaka og einstaklinga, ásamt því markmiði að jafna aðgengi barna og ungmenna að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.

Eftirtaldir hlutu styrki:

Umsækjandi

Heiti verkefnis

Styrkur

Borgarbókasafnið

Söguheimurinn NORD

18.585.000

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

Handritin til barnanna

9.350.000

Listasafn Íslands

Menntun barna í söfnum

5.300.000

Unglingurinn í Reykjavík

Unglingurinn á Íslandi

5.000.000

 

Borgarsögusafn

Viðeyjarundrin

4.800.000

 

Guðrún Jónsdóttir Bachmann

Vísindasmiðjan í Hörpu

3.756.000

 

Barnamenningarfélagið Skýjaborg

SPOR - sýningarferðalag

3.567.000

 

Klassíski listdansskólinn ehf.

Dans fyrir alla

3.550.000

 

Þuríður Helga Kristjánsdóttir

Leikfélag unga fólksins

3.200.000

 

Austurbrú ses.

BRAS - Menningarhátíð - Tjáning án tungumáls

3.000.000

Reykjavíkurborg-Barnamenningarhátíð

BIG BANG tónlistarhátíð í Reykjavík

3.000.000

Edda Erlendsdóttir

Hver vill hugga krílið?

2.690.000

Trúðavaktin, félagasamtök

Sjúkrahústrúðar

2.620.000

Ásthildur Björg Jónsdóttir

Listasmiðja: Sögur af sjó

2.572.200

Ari Hlynur Guðmundsson Yates

FLY - ÍSLAND

2.450.000

Sauðfjársetur á Ströndum ses.

Náttúrubarnaskólinn á Ströndum

2.000.000

Listasafn Alþýðusambands Íslands

KJARVAL Á KERRU

2.000.000

Menningarhúsin í Kópavogi

Fjölþjóðleg barnamenning

1.800.000

Docfest ehf.

Akranes með okkar augum

1.672.250

Aude Maina Anne Busson

HOMINAL Dansverk

1.600.000

Hönnunarsafn Íslands

Hönnunarskóli Hönnunarsafns Íslands

1.540.000

Handbendi Brúðuleikhús ehf.

Summer Youth Theater

1.500.000

Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir

Krakkaveldi - Vinnusmiðja

1.456.640

Strandagaldur ses.

Galdrar og þjóðsögur á Ströndum

1.310.000

Rótarskot Reykjavík

Reykjavík Menningarhringur

1.242.400

Háskóli Íslands

Umboðsmenn friðar

1.000.000

Menningarmiðstöðin Edinborg

Tungumálatöfrar

1.000.000

Tónlistarskóli Ísafjarðar

Kvikmyndatónleikar barna

950.000

Stúlknakór Akureyrarkirkju

Blái hnötturinn og barnasáttmálinn

900.000

Meðvitaðir Foreldar - Virðing í uppeldi

Ævintýraleikvellir

830.000

Tónskáldafélag Íslands

Myrkrabörn

750.000

Listahátíð í Reykjavík

Uppljómunargarðurinn

731.800

Stelpur rokka!

Rokkrúlletta

600.000

Menningarfélagið Hneykslist

Youth Fringe

476.500

GamanGaman - Félagasamtök

Vinnusmiðja og barnasýning á Gamanmyndahátíð Flateyrar

400.000

Amtsbókasafnið á Akureyri

Útibókasöfn á Akureyri

300.000