Tvö hundruð og fimmtíu einstaklingar hafa fengið staðfest að þeir bera stökkbreytingu í BRCA2-erfðavísi sem stórlega eykur áhættu á arfgengu brjóstakrabbameini, krabbameini í eggjastokkum og í blöðruhálskirtli. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Í gær höfðu vel yfir 39 þúsund einstaklingar óskað eftir slíkum upplýsingum á vefsvæðinu arfgerd.is sem Íslensk erfðagreining opnaði í maí síðastliðnum.
Í fréttinni kemur fram að Íslensk erfðagreining á enn eftir að taka sýni úr 10 þúsund einstaklingum sem vilja upplýsingarnar.