Í fréttaskýringarþættinum 21, sem sýndur verður í kvöld klukkan 21:00 á Hringbraut, munu þeir Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson og Sigmundur Ernir Rúnarsson fara yfir ólögmætar skerðingar á greiðslum til öryrkja sem búa erlendis. Samkvæmt áliti Umboðsmanns Alþingis frá því í júní 2018 braut íslenska ríkið lög þegar það skerti greiðslur til yfir eitt þúsund öryrkja í yfir 10 ár.
Þrátt fyrir að rúmt ár sé liðið frá því að álitið var birt hefur ríkið ekki enn hafið endurgreiðslu á þessum ólögmætu skerðingum og segir ráðherra að öryrkjar gætu þurft að bíða í þrjú ár eftir endurgreiðslum vegna ólögmætra skerðinga. Samkvæmt gögnum sem Hringbraut hefur undir höndum kemur fram að Ásmundur Einar Daðason, félagsmálaráðherra hefur gefið misvísandi svör, bæði til fjölmiðla og velferðarnefnd Alþingis.
Voru sum svör svo misvísandi að Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingarstofnunar, sendi bréf í byrjun janúar til að spyrja ráðherra út í ummæli sín í viðtali við RÚV. Sagði Ásmundur að hann leggi áherslu að málið verði unnið eins hratt og mögulegt er.
Bendir Sigríður að á þeim tíma hafi Tryggingarstofnun ekki enn fengið nein fyrirmæli um hvernig eigi að standa að endurgreiðslum frá ráðuneytinu. Einnig segir hún að málið sé afar mikilvægt þar sem það snerist um framfærslu hóps fólks sem býr oft við þröngan kost og erfiðar aðstæður sökum fötlunar eða veikinda.
Hér að neðan má sjá stutta yfirferð um það sem verður í þætti kvöldsins.