15 umsóknir bárust um embætti seðlabankastjóra

Alls bárust forsætisráðuneytinu 15 umsóknir um embætti seðlabankastjóra. Á meðal þeirra sem sækja um eru Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi fjármála- og efnahagsráðherra, og Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur og fyrrverandi forseti Alþýðusambands Íslands.

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Sem kunnugt er mun Már Guðmundsson seðlabankastjóri láta af embætti í sumar þegar hann hefur lokið 10 ára starfi.

Embættið var auglýst laust til umsóknar þann 20. febrúar síðastliðinn og rann frestur til umsóknar út á miðnætti 25. mars. Sérstök hæfnisnefnd verður skipuð til þess að fara yfir umsóknirnar og meta hæfni þeirra, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands.

Umsækjendurnir 15 um embætti seðlabankastjóra eru eftirfarandi:

Arnór Sighvatsson, ráðgjafi seðlabankastjóra,
Ásgeir Jónsson, dósent og forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands,
Ásgeir Brynjar Torfason, lektor við Háskóla Íslands,
Benedikt Jóhannesson, fyrrv. fjármála- og efnahagsráðherra,
Gunnar Haraldsson, hagfræðingur,
Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur,
Gylfi Magnússon, dósent,
Hannes Jóhannsson, hagfræðingur,
Jón Daníelsson, prófessor,
Jón G. Jónsson, forstjóri bankasýslu ríkisins,
Salvör Sigríður Jónsdóttir, nemi,
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri,
Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri markaðs-, viðskipta- og fjarstýringar í Seðlabanka Íslands,
Vilhjálmur Bjarnason, lektor,
Þorsteinn Þorgeirsson, sérstakur ráðgjafi á skrifstofu seðlabankastjóra.