Samtals höfðu 740 fyrrverandi starfsmenn WOW air sótt um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun (VMST) frá 28. mars, þegar félagið fór í gjaldþrot, og fram í byrjun síðustu viku, 8. apríl. Í heildina hefur VMST borist 1.441 umsókn um atvinnuleysisbætur frá 28. mars. Af þeim eru 1.099 frá Íslendingum og 342 frá erlendum ríkisborgurum.
Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu VMST um ástandið á vinnumarkaði.
VMST gerir ráð fyrir því að skráð atvinnuleysi muni aukast í apríl og verða á bilinu 3,3 – 3,6 prósent. Skráð atvinnuleysi í mars mældist 3,2 prósent, en áhrifa WOW air gætir þar aðeins að litlu leyti þar sem reksturinn stöðvaðist undir lok mánaðar.
Í seinasta mánuði voru 1.659 fleiri á atvinnuleysisskrá en í mars í fyrra, og skýrist það að mestu af gjaldþroti WOW air og samdráttar í tengdum atvinnugreinum.