Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og fulltrúi flokksins í innkauparáði Reykjavíkurborgar segir samning borgarinnar við RÚV brot á innkaupareglum borgarinnar.
Tveggja ára samstarfs- og styrktarsamningur var gerður við UngRÚV, sem hljóðar upp á rúmar 14 milljónir króna. Upphæðin fer yfir viðmiðunarmörk um útboðsskyld verkefni.
Viðskiptablaðið fjallar um þetta.
Björn segir að gefa hefði átt öllum ljósavikamiðlum tækifæri á að bjóða í samstarfs- og styrktarsamninginn í samræmi við innkaupareglur borgarinnar.
„Skv. 11. gr. innkaupareglna Reykjavíkurborgar er skylt að viðhafa innkaupaferli, annað en verðfyrirspurn, þegar áætluð samningsfjárhæð að meðtöldum virðisaukaskatti nær 14 milljónum króna vegna kaupa á þjónustu eins og segir orðrétt í innkaupreglunum,“ segir Björn í samtali við Viðskiptablaðið.
Björn vísar til þess að fjölmargir aðrir miðlar gætu sinnt þessari þjónustu og myndu glaðir þiggja til þess fé enda mikil samkeppni á fjölmiðlamarkaði og RÚV í yfirburðastöðu sem fjallað er nú um hjá Samkeppniseftirlitinu varðandi auglýsingar í kringum HM í sumar.