11 undir þrítugu létust af völdum lyfja á síðasta ári - „hvert einasta lyfjatengt andlát er einu of mikið“

Í ljósi umræðu um lyfjatengd andlát hér á landi hefur embætti landlæknis birt yfirlit yfir fjölda lyfjatengdra andláta eftir aldursflokkum á árunum 2014-2018. Með lyfjatengdum andlátum er átt við tilfelli þar sem lyfjanotkun var skráð sem dánarorsök í dánarmeinaskrá.

Árið 2018 voru tvö andlát ungmenna yngri en 20 ára sem rekja má til misnotkunar lyfja. Þegar litið er til ungmenna yngri en 25 ára voru samtals 6 lyfjatengd andlát í þeim hópi árið 2018. Heildarfjöldi ungs fólks undir þrítugu sem lést af völdum lyfja var 11 árið 2018.

„Hvert einasta lyfjatengt andlát er einu of mikið. Það er því mikilvægt að við sem samfélag gerum allt sem við getum til að koma í veg fyrir þau. Við þurfum að vinna saman að því að lyf séu notuð á réttan hátt og í samræmi við ráðleggingar lækna,“ segir í tilkynningu landlæknis.

Þar kemur fram að rannsóknir sýni að tæplega 11 prósent grunnskólanema í 10. bekk hafi tekið svefntöflur eða róandi lyf sem ekki var ávísað á þau og að 1,5 prósent hafi reynt örvandi lyf sem ekki voru þeim ætluð. Þá hafa um 20 prósent fólks í grunnnámi í Háskóla Íslands notað örvandi lyf án þess að hafa fengið þeim ávísað frá lækni.

Embætti landlæknis varar sem fyrr við hvers kyns notkun lyfja sem viðkomandi hefur ekki fengið ávísað af lækni.

Tafla sem embætti landlæknis útbjó, þar sem fjöldi lyfjatengdra andláta eftir aldri á árunum 2014-2018 er listaður upp er að finna hér:

\"\"