10 atriði sem benda til þess að þú sért pottþétt sjálfstæðismaður: þrjú atriði og þú ert í hættu - þér finnst að kolkrabbi ætti að vera friðuð tegund

Skopsíðan Gys.is deildi lista þar sem talin voru upp 10 atriði sem eru sögð benda til þess að þú sért Sjálfstæðismaður. Listinn fór fyrst í umferð fyrir nokkrum árum en hefur gengið í gegnum endurýjun lífdaga á samskiptamiðlum síðustu daga og farið víða. Listinn er sagður vera „engan veginn tæmandi“ og að ef þrjú eða fleiri atriði af eftirfarandi lista eigi við þig sértu Sjálfstæðismaður. Þeim tilmælum er auk þess vísað til Garðbæinga að óþarfi sé fyrir þá að lesa listann, þar sem þeir séu pottþétt Sjálfstæðismenn.

Listinn, sem er einungis til gamans gerður, er eftirfarandi:

10. Helstu fyrirmyndir þínar í lífinu eru Reagan og Thatcher.

9. Þú kannt lítið á internetið, en það er allt í lagi, því þú kannt á Morgunblaðið.

8. Þér finnst að kolkrabbi ætti að vera friðuð tegund.

7. Í hvert sinn sem þú heyrir minnst á kosningaloforð, þá hróparðu „PÓLITÍSKUR ÓMÖGULEIKI“, og hleypur í burtu.

6. Frændur þínir fá reglulega fyrirtæki að gjöf frá Landsbankanum, án þess að þú hafir nokkuð komið að málinu, né getir gert eitthvað í því.

5. Þú heldur að orðin „styrkur“ og „mútur“ þýði það sama.

4. Þú seldir fyrrverandi vinnuveitanda þínum íbúðina þína og leigir nú af honum. Þú ferð reglulega með honum í utanlandsferðir til að vinna að framgangi fyrirtækis hans, en ert á sama tíma á launum hjá íslenska ríkinu. Þér finnst þetta allt saman óskaplega eðlilegt og þú neitar þess vegna alfarið að svara spurningum tengdum málinu.

3. Þér finnst það ekki skipta öllu máli hvort þú sért sammála stefnu Flokksins eða ekki. Það væri veikleikamerki að hætta að kjósa hann.

2. Þú ert hlynnt/ur því að lögreglan vopnist, og þér finnst einnig fullkomlega sjálfsagt að hún njósni um borgarana, haldi um þá leyniskýrslur, og lumbri á þeim þegar á þarf að halda. Þér finnst fáránlegt að stórfyrirtæki megi ekki mæta í skóla og gefa merkjavarning. Þér finnst enn fáránlegra að Gideonfélagið hafi ekki fullan og óheftan aðgang að skólabörnum, og óskorað vald yfir þeim.

1. Þú þolir ekki trúleysingja, grænmetisætur, femínista, umhverfisvernd, eftirlitsstofnanir, Evrópusambandið, RÚV, hjúkrunarfræðinga og Karl Ágúst Úlfsson. En þú ert ástfangin/n upp fyrir haus af íslensku krónunni.

\"\"

Myndin sem fylgdi færslu Gys.is